top of page

Blágresi

Blágresi (Geranium sylvaticum) er áberandi fjölæringur í skógum landsins. Í hugum landsmanna er fátt sumarlegra og fallegra en blágresisbreiða í blóma.

Útlit

Fremur hávaxin (20-50 sm) jurt á íslenskan mælikvarða.  Blöðin eru tennt og handskipt. Hið einkennandi blóm er lausblaða og fallega ljósfjólublátt.

Blómgun

Útbreiðsla

Tegundina er að finna um allt land  á láglendi, yfirleitt á afmörkuðum svæðum í kjarrlendi, skógarbotnum og grónum brekkum. Blágresi vex einnig hátt til fjalla á Íslandi, í skjólsælum hvömmum, snjódældum og hraungjótum. 


Kjörlendi

Blágresi kann vel við sig í næringarríkum jarðvegi í kjarrlendi, skógum og skógarbotnum, enda vísar latneska heitið „sylvaticum“ til skóga. Þó er hægt að finna blágresi við aðstæður sem líkja að sumu leyti eftir skógi, þar sem er skjól er að finna og snjósöfnun á sér stað. Vegna aðlögunar að skógarumhverfi þolir tegundir vel hálfskugga. 
Tegundin er viðkvæm fyrir beit og hverfur við hátt beitarálag. Því er hægt að nýta tegundina sem leiðarvísi um stöðu landnotkunar.

Annað áhugavert
 

Blágresi var nýtt til litunar á ull áður fyrr og var því einnig nefnt litunargras. Hægt var að ná fram bláum lit með blöðunum en einnig svörtum ef bætt var við sortu (rotnuðum jurtaleyfum úr mýrum). 

bottom of page