Líf í lundi 2023
Líf í lundi er útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins sem haldinn verður 24. júní næstkomandi þar sem almenningur er hvattur til þess að stunda hreyfingu, samveru og upplifa skóga og náttúru landsins. Flestir viðburðir eru á laugardeginum 24. júní, en þó eru einnig viðburðir í gangi frá föstudegi til mánudags.
Skógar landsins hafa þjónað mikilvægu hlutverki á síðustu misserum til útivistar og líklega sjaldan verið nýttir jafn mikið og í ár. Áhrif þeirra á andlega og líkamlega heilsu landans eru nú hvergi vanmetin.
Hér að neðan munu birtast upplýsingar um fjölbreytta og fræðandi viðburði sem standa til boða í ár. Gerðu þér glaðan dag og vertu velkomin út að njóta sumarsins í skjóli skóganna. Velkomin út í skóg!
Samstarfsnefnd Lífs í lundi
Ljósmyndasamkeppni Líf í lundi
Farðu út með myndavélina þína um helgina!
Taktu þína bestu mynd af atburðum á Líf í lundi eða bara í morgungöngunni í skóginum og merktu (taggaðu) okkur ná Instagram eða Facebook með myllumerkinu #lifilundi.
Senda má inn myndir teknar dagana 23-26. júní. Dómnefnd mun velja 10 bestu myndirnar og vera í sambandi við ljósmyndara. Myndirnar verða svo settar inn á Facebook-síðu Lífs í lundi og opnað fyrir atkvæðagreiðslu. Sú mynd er hlítur flest "Like" eða viðbrögð vinnur. Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin.
Spennandi verðlaun í boði