top of page

Gerðu þér glaðan dag!

LÍF Í LUNDI

26. JÚNÍ
Velkomin út í skóg

 Fjölbreyttir viðburðir í boði um allt land

Viðburður 1
Rauður_krossnefur.jpg

26. JÚNÍ
FUGLAGANGA

Skógræktarfélag Eyfirðinga býður upp á skógargöngu, fuglafræðslu og leiðsögn í að tálga fugla úr greinum í Hánefsstaðareit, Svarfaðardal sunnudaginn 26. júní á milli kl 13 og 16.

Tilvalið fyrir fjölskyldur að mæta og fræðast um skóginn og fuglana sem búa þar og í nágrenninu og njóta útivistar.
Jón Magnússon fræðir, Sólveig Lilja Sigurðardóttir leiðbeinir þeim sem vilja um hvernig hægt er að töfra fugla úr trjágreinum og stjórnarfólk hitar ketilkaffi og blandar djús - hafið endilega fjölnota mál meðferðis og tálguhníf ef þið eigið.


Hægt er að leggja á bílastæði við suðurenda Háfnesstaðareits.
Í ár eru 76 ár frá því Eiríkur Hjartarsson hóf skógrækt á Hánefsstöðum en 1965 tók félagið við umhirðu reitsins.

https://www.kjarnaskogur.is/hanefsstadaskogur

Fræðist um fuglana í skóginum
Lærið að skera út fugl!
Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna!
Upplýsingar
Tímasetning
kl.13:00-16:00
Staðsetning
Hánefsstaðaskógur- Svarfaðardal
  • Facebook Social Icon
bottom of page