top of page

Hrútaber

Hrútaber (Rubus saxatilis) er eitt af skógarberjum okkar Íslendinga þó tegundin vaxi einnig utan þeirra. Hrútaberin eru vinsæl hjá fuglum og mönnum og er útbreiðsla hrútaberja að aukast með beitarfriðun og víðfeðmari skógum. 

Útlit

Lágvaxin fjölær jurt (10-35 sm) með þrífingruðum sagtenntum blöðum sem bera djúpar rákir. Á blöðum og stilkum eru smáir þyrnar.  Blómstrar með hvítum blómum í júlí.
Einkennandi fyrir tegundina eru hin skærrauðu ber er taka að þroskast við sumarlok og skriðulir, einærir jarðrenglar sem vaxa út frá rótarhálsi og geta orðið margir metrar á lengd.  
Áður en aldin myndast getur útlit plöntunnar minnt á jarðaber, enda bygging og blöð afar svipuð. Einföld leið til þess að greina þar á milli er að líta á miðsmáblaðið, því ef það situr á stilk þá er um hrútaber að ræða. Að auki eru engir þyrnir á jarðarberjaplöntum.

Blómgun

Útbreiðsla

Tegundina er að finna um land allt á láglendi en hún vex upp í allt að 500 metra hæð yfir sjávarmáli við góð skilyrði. 


Búsvæði

 

Hrútaber vaxa í frjósömum gras- og lyngbrekkum, kjarrlendi og skógum. Tegundin er skuggþolin og getur vaxið undir þéttu birkikjarri en berjasprettan verður ekki góð nema við góð birtuskilyrði. Getur orðið mjög áberandi á stórum svæðum í hálfopnum skógum, þar sem samkeppni við hærri tegundir er ekki of mikil. Nemur fljótt auðan skógarbotn í nýgrisjuðum skógi.

   
 

Annað áhugavert

Samkvæmt þjóðtrú mátti nota jarðrenglur hrútabersins til að fjötra illa vætti og voru því renglurnar nefndar skollareipi eða tröllareipi. 

bottom of page