top of page

Jórvíkurskógur

-Upplýsingar

Ábyrgðaraðili: Skógræktin

 

 


 

 

 

Almennt um skóginn

Jórvík í Breiðdal er eyðibýli með stórum kjarrlendum. Um 600 ha eru í eigu Skógræktarinnar en skógurinn var friðaður 1960. Hér er einn af fáum fundarstöðum blæaspar á landinu og eru hæstu trén um 4 m. Landið er annars að mestu vaxið náttúrulegu birkikjarri en gróðursettum skógi að hluta. Svæðið er opið almenningi og merkt gönguleið er frá Jórvík yfir í Norðurdal.

 

Aðstaða og afþreying

 

Merkt gönguleið er frá Jórvík yfir í Norðurdal. Að öðru leyti er landið það opið að auðvelt er að fara um það. Sumarið 2011 var komið upp grillaðstöðu fyrir almenning við veginn upp að gamla Jórvíkurbænum, ætlaða öllum gestum sem vilja njóta dagstundar í skóginum.

Saga jarðarinnar

 

Árið 1958 var Skógrækt ríkisins gefinn hluti jarðarinnar. Í ársskýrslu Skógræktar ríkisins það ár skrifar Hákon Bjarnason: 

„Á þessu ári barst Skógrækt ríkisins mikil og góð gjöf. Systkinin þau, sem áttu Jórvík í Breiðdal, þau Hannes M. Þórðarson, Björgvin Þórðarson, Bjarni A. Þórðarson og Sigríður Þórðardóttir, gáfu nærri allt skóglendi þeirrar jarðar til friðunar og ræktunar. Væntanlega verður lokið við friðun landsins snemma á árinu 1960, svo gróðursetning gæti hafist á því ári.“ Þessi hluti jarðarinnar, allur ofan þjóðvegar, var girtur 1960-1961. Girðingin er 8,2 km löng og innan hennar eru 500 ha. Árið 1963 eignaðist Skógræktin svo 1/4 af óskiptu landi jarðarinnar fyrir utan skógargirðinguna.

 

Trjárækt í skóginum

 

Á þeim árum sem jörðin var gefin var skógræktarland mjög torfengið. Hákon Bjarnason, skógræktarstjóri á þeim tíma, ákvað því að gróðursetja í landið. Gróðursetning hófst árið 1962 og var þá mest gróðursett af blágreni. Auk þess var gróðursett rauðgreni, sitkagreni og hvítgreni. Tveimur árum síðar var aftur gróðursett og í það skiptið hvítgreni, blágreni, broddfura, gráelri, evrópulerki o.fl. tegundir. Árið 1966 voru þrjár tegundir gróðursettar, rauðgreni, hvítgreni og birki. Í dag er birkikjarrið í skóginum að mestu lágvaxið og kræklótt en blæöspin er mesta gróðurstolt Jórvíkur ásamt grenireitum sem nú eru komnir í góðan vöxt.

 

Annað áhugavert

 

Fjallahringurinn í innanverðum Breiðdal er stórkostlegur á björtum degi.

 

Fengið með leyfi frá: www.skogur.is

 

 

 

 

 

bottom of page