top of page

Reykjarhólsskógur

-Upplýsingar

Ábyrgðaraðili: Skógræktin

 

 


 

 

 

Almennt um skóginn


Reykjarhólsskógur er skógarreitur í umsjá Skógræktarinnar upp af byggðinnni í Varmahlíð. Skógurinn tengist nærliggjandi svæðum og myndar fjölbreytt útivistarsvæði með merktum gönguleiðum.


Staðsetning og aðgengi

Best er að komast að Reykjarhólsskógi upp frá götunni Birkimel í Varmahlíð og taka svo fyrstu beygju til norðurs. Við aðkomuna að skóginum er knattspyrnuvöllur og tjaldsvæði.


Aðstaða og afþreying

Í skóginum eru merktar gönguleiðir og útsýnisskífa á Hólnum þar sem útsýni er mjög gott til allra átta.
 

Saga jarðarinnar

Skógrækt ríkisins fékk umsjón með Reykjarhólsreitnum árið 1950 samkvæmt samningi við Héraðsskólann í Varmahlíð, en Sýslunefnd Skagafjarðar var búin að láta girða þar 17,5 ha skógræktargirðingu árið 1943. Stofnað var til græðireitar í brekkurótinni til að geyma plöntur. Hann varð að gróðrarstöðinni Laugarbrekku sem rekin var til ársins 2000 og var miðstöð skógarplöntuframleiðslu og dreifingar á Norðurlandi vestra í um hálfa öld. 


Trjárækt í skóginum

Gróðursetning hófst 1947 með þrjú þúsund birkiplöntum af Bæjarstaða­kvæmi og var fram haldið af mestum krafti næstu 20 árin, en þá hafði verið gróðursett í meiri hluta girðingarinnar. Vandamál reyndust mörg framan af við ræktun á þessum stað, þar sem sáralítil reynsla var í skógrækt. Langerfiðast var að fást við grasvöxt, þar sem snarrótarpuntur var drottnandi eins og algengt er í Skagafirði, þar sem land er friðað fyrir beit. Eftir að plöntur komust upp úr grasinu og mynduðu samfellt krónuþak – sem varð auðvitað fyrr en ella vegna þess, hve þétt var gróðursett – hafa margar trjátegundirnar vaxið ótrúlega vel, langtum betur en menn gátu vænst í upphafi.  Þannig má álykta, að það hafi reynst happadrjúgt við aðstæður á Reykjarhóli að gróðursetja þétt til þess að kæfa snarrótarpuntina sem fyrst. Eftir 1980 var ljóst, að nauðsynlegt var að hefja grisjun í hinum ofurþétta skógi. Fyrst var grisjað í Reykjarhólsskógi árið 1984 en frá 1988 hefur árlega verið grisjað, bæði brotin tré eftir snjóþyngsli og ákveðin svæði kerfisbundið, svo að nú er skógurinn kominn í allgott horf.

 

Annað áhugavert

 

Örnefnin Reykjarhóll, Laugarbrekka og Varmahlíð eru til marks um jarðhita á svæðinu. All langt er síðan hann var virkjaður og nýttur til húshitunar í Varmahlíð.

 

Fengið með leyfi frá: www.skogur.is

 

bottom of page