top of page

Lýðheilsugöngur Ferðafélags Íslands

Ferðafélag Íslands fagnar 90 ára afmæli á árinu og af því tilefni verður efnt til glæsilegrar afmælisdagskrár. Þar á meðal verður boðið upp á lýðheilsugöngur um land allt í septembermánuði. Göngurnar eru fjölskylduvænar, taka um 60-90 mínútur og hefjast alla miðvikudaga kl. 18:00. Tilgangurinn með verkefninu er að hvetja fólk til útivistar og efla þar með heilsu sína og lífsgæði. Hægt er að velja afar fjölbreyttar göngur, margar hverjar í útivistarskógum landsins. Allir eru hjartanlega velkomnir og um að gera nýta sér tækifærið, ganga í fallegu umhverfi með vinum og fjölskyldu undir leiðsögn fróðra göngustjóra. Á vefsíðu Ferðafélagsins, http://www.lydheilsa.fi.is/, má finna allar nauðsynlegar upplýsingar um gönguferðir í hverjum landshluta fyrir sig. Allir út að hreyfa sig í haustblíðunni!

Mest lesið
Nýlegar fréttir
Fréttasafn
Leitarorð
No tags yet.
Fylgstu með
  • Facebook Basic Square
bottom of page