top of page

Líf í lundi 22. júní 2019

Líf í lundi er útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins, sem skógaraðilar á Íslandi standa sameiginlega að og verður hann haldinn í annað sinn í ár. Markmið hans er að fá almenning til að heimsækja skóga landsins og stunda hreyfingu, njóta samveru og upplifa skóga og náttúru landsins.

Boðið verður upp á fjölmarga viðburði í skógum landsins um land allt á laugardeginum 22. júní. Að deginum standa Skógræktarfélag Íslands og aðildarfélög þess, Skógræktin og Landssamtök skógareigenda, í samvinnu við aðrar stofnanir og félagasamtök, auk þess sem Arion banki styður almennt við verkefnið.

Nánari upplýsingar um viðburði verður hægt að finna hér á Skógargátt-vefsíðunni og á Facebook-síðu Líf í lundi - https://www.facebook.com/lifilundi/, auk þess sem einstakir viðburðahaldarar verða með kynningu á sínum miðlum.

Fylgist með og takið þátt!

Mest lesið
Nýlegar fréttir
Fréttasafn
Leitarorð
No tags yet.
Fylgstu með
  • Facebook Basic Square
bottom of page