top of page

Líf í lundi 2026

  • Jun 15
  • 3 min read

Updated: Jun 23



Um Jónsmessuhátíðina 2026 verða viðburðir Líf í lundi í skógum Íslands víða um um landið. Nærliggjandi þéttbýlisstaðir við þegar komna viðburði eru: Egilsstaðir, Borgarnes, Reykjanesbær, Höfuðborgarsvæðið, Hella, Akranes og Hvalfjarðarsveit.




Í tímaröð:

  1. júní - Mánudagur

Líf í lundi í Slögu

Slaga, skógræktin við rætur Akrafjalls

Skógræktarfélag Akraness, til aðstoðar skátarnir á Akranesi

og Norræna félagið á Akranesi.

Allir velkomnir.

  1. júní - Laugardagur

Skógardagurinn mikli

Trjásafninu í Hallormsstaðaskógi

Skógardagurinn mikli er fjölskylduhátíð í Hallormsstaðarskógi með Íslandsmóti í skógarhöggi, grillveislu, ketilkaffi og skemmtidagskrá.

Félag Skógarbænda, Land og skógur Hallormsstað, Félag sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum og Félag nautgripabænda á Héraði og Fjörðum


  1. júní - Laugardagur

Líf og fjör í Sólbrekkuskógi

Sólbrekkuskógi

Gróðursetningar hófust í Sólbrekkuskógi fyrir 70 árum.

Skemmtun, fræðsla og grillveisla í nýja skógarskýlinu milli klukkan 11 og 13.

Úrslit nafnasamkeppni á skýlinu. Gróðursetning trjáa í móanum.

Fræðsluganga með Hannesi Þór Hafsteinssyni náttúrufræðingi. Grillveisla, söngur og fjör.

Allir velkomnir!

Skógræktarfélag Suðurnesja í samstarfi við Reykjanesbæ


  1. júní - Sunnudagur

Líf í lundi í Álfhólsskógi

Álfholtsskógur

Líf og fjör í skóginum.

Skógarganga, leikir, tálg, frisbí golf, axarkast, plöntugreining, veitingar - teinabrauð, kringlur og Swiss Miss. Í boði Skógræktarfélag Skilmannahrepps.




  1. júní - Sunnudagur

Líf í lundi í Einkunnum 2026

Einkunnir við Borgarnes

Skógræktarfélag Borgarfjarðar býður til útivistardags með ferfættu fjölskyldumeðlimunum (dýr með færri fætur líka velkomin!).

 

Dagskrá

Kl. 11. Gæludýramessa. Sr. Heiðrún Helga Bjarnadóttir predikar

Að lokinni messu býður félagið til skógarskemmtunar – skógarganga, gæludýraleikar og fleira.


Skógarganga

Lagt verður af stað í göngu kl. 13 og mun Valdimar Reynisson leiða gönguna.

 

Gæludýraleikar

Leikar hefjast kl. 11:45. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:

Fyrir alla:

·       Mesta dillirófan

·       Besta brosið

·       Virðulegasti öldungurinn

·       Sætasti nebbinn

Fyrir krakka:

·       Flottasta parið (mætið klædd í stíl við gæludýrið ykkar!)

·       Besta bragðið – sýndu hvað „trix“ dýrið þitt getur gert.

Verðlaun verða veitt í hverjum flokki.

 

Skógarbingó

Öllum velkomið að taka þátt!

 

Hressing í boði félagsins – grillaðar pylsur, ketilkaffi, kakó og grillaðir sykurpúðar!


https://www.facebook.com/events/1463375288874909?acontext=%7B%22event_action_history%22%3A[%7B%22mechanism%22%3A%22attachment%22%2C%22surface%22%3A%22newsfeed%22%7D]%2C%22ref_notif_type%22%3Anull%7D

  1. júní - Þriðjudagur

Líf í lundi í Mosfellsbæ

Úlfarsfell, Landnemareitur við Skarhólabraut

Skógræktarfélag Mosfellsbæjar býður í skógarferð við Skarhólabraut. Berserkir leyfa gestum að prufa axarkast, Mugison mætir og tekur nokkur lög, pulsur á bálpönnunni.

  1. júní - Miðvikudagur

Líf í lundi í Bolholtsskógi

Bolholtsskógur

Skógræktarfélag Rangæinga verður með viðburð í Bolholtsskógi 24.júní n.k kl. 18, ratleikur og grillaðar pylsur. 

Allir velkomnir.

Allir velkomnir.

  1. júní - Laugardagur

Líf í lundi, Kvöldrölt í Kristnesskógi

Kristnes, 605 Eyjafjarðarsveit, Ísland


Kvöldrölt í Kristnesskógi.


Skógræktarfélag Eyfirðinga boðar til kvöldgöngu í Kristnesskógi laugardagskvöldið 27 júni kl 19. Skógræktarfélög á Íslandi bjóða landsmönnum upp á upp á sumarsólstöðugöngu kring um Jónsmessu, okkar ágæta rölt er hluti af því verkefni.


Gangan er hóflega löng og á flestra færi. Þeir sem eru sérlega fótafúnir geta látið duga að taka litla malbikaða hringinn neðst í skóginum sem er hjólastóla fær. Reiknað er með svona klukktíma rólegu rölti.


Nokkur athyglisverð tré og lundi má finna í skóginum eins og rauðgreni frá 1953, Hakaskoia lerki frá 1951, Arkangelsk, rússalerki frá því um 1937 (systur tré Guttormslundar), steinbjörk frá 2024 af fræi frá Hálsi (fyrrum Kamtjatka skagi), Hengibjörk frá Pasvik 1979 og villi epli (fræepli) frá Finnlandi frá 2022.


Gangan mun enda í aldingarðinum þar sem eplatrén standa vonandi enn í blóma. Þar býður skógræktarfélagið uppá skógarkaffi og Beate Stormo húsfreyja og skógarbóndi í Kristnesi býður uppá grenisprota te.


Helgi þórsson Bóndi í Kristnesi mun leiða labbið. Safnast er saman á bílastæðinu norðan við Hælið sem sjá má hér á goggle map, bændur í Kristnesi eru annáluð fyrir gestrisni og hér er ávísun á gott kvöldrölt

Hittumst hress


Hlekkur

https://www.facebook.com/events/1551784189627748/?acontext=%7B%22event_action_history%22%3A[%7B%22mechanism%22%3A%22attachment%22%2C%22surface%22%3A%22newsfeed%22%7D]%2C%22ref_notif_type%22%3Anull%7D


  1. júní - Laugardagur

Líf í lundi í Höfðaskógi

Þöll, Kaldárselsvegi, Hafnarfirði

Fjölskyldudagurinn "Líf í lundi" verður haldinn laugardaginn 27. júní milli kl. 14.00 - 17.00. Boðið verður upp á skemmtun og veitingar á hlaðinu við Þöll. Hliðið inn á hlaðið við Þöll verður lokað. Ef þið komið á bifreið vinsamlegast leggið í Værð, við Höfða, við Hvaleyrarvatn eða á Beitarhúsaháls. Bendum á Græna stíginn sem er göngu- og hjólreiðastígur.



Skógræktarfélag Hafnarfjarðar

 



Að Lífi í lundi koma: Skógræktarfélag Íslands, Bændasamtök Íslands og Land og skógur



 
 
 

Comments


Mest lesið
Nýlegar fréttir
Fréttasafn
Leitarorð
Fylgstu með
  • Facebook Basic Square
bottom of page