Gróðursetning
Ganga með leiðsögn
Fjölbreytt útivera
27. JÚNÍ
GRÓÐURSETNING Í VATNSENDAHEIÐI
Gróðursetning verður haldinn í samstarfi Skógræktarfélags Kópavogs og
Kópavogsbæjar undir merkinu Líf í lundi þar sem hvatt er til hreyfingar,
samveru og skóga- og náttúruupplifunar. Viðburðurinn Líf í lundi verður
nú haldinn í sjötta sinn og fer fram í kringum Jónsmessuna víða um land.
DAGSKRÁ
Dagskrá dagsins hefst kl 17:00 þar sem safnast verður saman í
Fræðslusetrinu í Guðmundarlundi í Leiðarenda 3 og verður heitt á könnunni.
Fljótlega verður gengið upp á Vatnsendaheiði undir leiðsögn og hugað
að gróðri og sögu. Á heiðinni verður horft til framtíðar og gróðursettar
plöntur í þágu aukinna lífsgæða.Skógrækt er góð leið til að binda CO2 úr
andrúmsloftinu til langs tíma en um leið er verið að stuðla að jarðvegsvernd.
Sveppum og mordýrum í jarðvegi fjölgar vatnsmiðlun eflist og skógurinn opnar
nýja möguleika til útivistar svo eitthvað sé nefnt. Að gróðursetningu lokinni verður gengið til baka í Guðmundarlund.
*Athugið að þeir sem ekki treysta sér að ganga upp og Vatnsendaheiði en vilja taka þátt í gróðursetningum eða fylgjast með þá er hægt aka bifreið að gróðursetningar stað.
Að lokinni formlegri dagskrá geta þátttakendur í Líf í lundi dvalið áfram í Guðmundarlundi og bardúsað við ýmislegt skemmtilegt enda hefur lundurinn upp á margt að bjóða. Í lundinum er meðal annars 10 brauta frísbígolfvöllur, leiktæki og frábær 9 holu minigolfvöllur.
Inni í miðjum Guðmundarlundi er Hermannsgarður, lítill og vinalegur blómagarður, með steinabeðum, stígum og bekkjum og svo er það auðvitað skógurinn sjálfur sem bíður upp á mikla möguleika til leikja og útivistar.
Fyrir þá sem ætla að taka hring á iðjagrænum golfvellinum þá má benda á að hver og einn verður að taka með sér eigin golfkylfur og kúlur og það sama á við um frísbígolfvöllinn, að fólk verður að koma með sína diska.
Ekki eru allir sem rata í Guðmundarlund er einfaldast fyrir þá að fara inn á https://ja.is/ og slá inn Leiðarendi 3.