top of page

Til hamingju Vigdís!

Vigdís Finnbogadóttir fagnar í dag 90 ára afmæli sínu!

Vigdís hefur verið einn ötulasti talsmaður skógræktar og landgræðslu hérlendis, bæði í forsetatíð hennar og síðar. Fyrir framlag sitt til skógræktar var Vigdís gerð að heiðursfélaga Skógræktarfélags Íslands árið 1984. Má skógræktarhreyfingin hérlendis sannarlega þakka fyrir að eiga slíkan liðsmann.

Skógræktarfólki um allt land sem vill gleðja og heiðra Vigdísi á þessum tímamótum er bent á Styrktarsjóð Stofnunar Vigdísar https://vigdis.hi.is/stofnunin/styrktarsjodur/ en Vigdís er formaður sjóðsins og hefur verið frá upphafi. Vigdís hefur oft látið þess getið að Stofnun Vigdísar og starfsemi hennar sé henni afar hugleikin.

Þess má til gamans geta að Vigdís og Skógræktarfélag Íslands eru jafnaldrar, en félagið fagnar 90 ára afmæli þann 27. júní næst komandi.

Vigdís gróðursetur ásamt ungum manni.


Mest lesið
Nýlegar fréttir
Fréttasafn
Leitarorð
No tags yet.
Fylgstu með
  • Facebook Basic Square
bottom of page