Skógargáttin leggur úr höfn - styrkur úr Lýðheilsusjóði
Lengi hefur blundað sá draumur hjá unnendum skóga landsins að hægt sé að nálgast upplýsingar um sem flesta þeirra á einum og sama staðnum. Þar ætti að vera hægt að finna upplýsingar um staðsetningu, göngustígakort, áhugaverðan texta um skóginn og svæðið, fallegar ljósmyndir og fróðleik um hin mörgu viðfangsefni skóga og útivistar.
Skógræktarfélag Íslands vonar að vefsíðan „Skógargáttin“ geti sinnt því starfi, öllum almenningi til góða.
Vinna við vefsíðuna hófst með nýju
