Líf í lundi 2026
- 23 hours ago
- 2 min read
Updated: 3 hours ago
Um Jónsmessuhátíðina 2026 verða viðburðir Líf í lundi í skógum Íslands víða um um landið. Nærliggjandi þéttbýlisstaðir við þegar komna viðburði eru: Egilsstaðir, Borgarnes, Reykjanesbær, Mosfellsbær, Hella, Akranes og Hvalfjarðarsveit.




Í tímaröð:
júní - Mánudagur

Líf í lundi í Slögu
Slaga, skógræktin við rætur Akrafjalls
Skógræktarfélag Akraness, til aðstoðar skátarnir á Akranesi
og Norræna félagið á Akranesi.
Allir velkomnir.
júní - Laugardagur
Skógardagurinn mikli
Trjásafninu í Hallormsstaðaskógi
Skógardagurinn mikli er fjölskylduhátíð í Hallormsstaðarskógi með Íslandsmóti í skógarhöggi, grillveislu, ketilkaffi og skemmtidagskrá.
Félag Skógarbænda, Land og skógur Hallormsstað, Félag sauðfjárbænda á Héraði og Fjörðum og Félag nautgripabænda á Héraði og Fjörðum
júní - Laugardagur
Líf og fjör í Sólbrekkuskógi
Sólbrekkuskógi
Gróðursetningar hófust í Sólbrekkuskógi fyrir 70 árum.
Skemmtun, fræðsla og grillveisla í nýja skógarskýlinu milli klukkan 11 og 13.
Úrslit nafnasamkeppni á skýlinu. Gróðursetning trjáa í móanum.
Fræðsluganga með Hannesi Þór Hafsteinssyni náttúrufræðingi. Grillveisla, söngur og fjör.
Allir velkomnir!
Skógræktarfélag Suðurnesja í samstarfi við Reykjanesbæ
júní - Sunnudagur
Líf í lundi í Álfhólsskógi
Álfholtsskógur
Líf og fjör í skóginum.
Skógarganga, leikir, tálg, frisbí golf, axarkast, plöntugreining, veitingar - teinabrauð, kringlur og Swiss Miss. Í boði Skógræktarfélag Skilmannahrepps.
jún - Sunnudagur

Líf í lundi í Einkunnum 2026
Einkunnir við Borgarnes
Skógræktarfélag Borgarfjarðar býður til útivistardags með ferfættu fjölskyldumeðlimunum (dýr með færri fætur líka velkomin!).
Dagskrá
Kl. 11. Gæludýramessa. Sr. Heiðrún Helga Bjarnadóttir predikar
Að lokinni messu býður félagið til skógarskemmtunar – skógarganga, gæludýraleikar og fleira.
Skógarganga
Lagt verður af stað í göngu kl. 13 og mun Valdimar Reynisson leiða gönguna.
Gæludýraleikar
Leikar hefjast kl. 11:45. Keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Fyrir alla:
· Mesta dillirófan
· Besta brosið
· Virðulegasti öldungurinn
· Sætasti nebbinn
Fyrir krakka:
· Flottasta parið (mætið klædd í stíl við gæludýrið ykkar!)
· Besta bragðið – sýndu hvað „trix“ dýrið þitt getur gert.
Verðlaun verða veitt í hverjum flokki.
Skógarbingó
Öllum velkomið að taka þátt!
Hressing í boði félagsins – grillaðar pylsur, ketilkaffi, kakó og grillaðir sykurpúðar!
https://www.facebook.com/events/1463375288874909?acontext=%7B%22event_action_history%22%3A[%7B%22mechanism%22%3A%22attachment%22%2C%22surface%22%3A%22newsfeed%22%7D]%2C%22ref_notif_type%22%3Anull%7D

24.jún - Miðvikudagur
Líf í lundi í Bolholtsskógi
Bolholtsskógi
Skógræktarfélag Rangæinga verður með viðburð í Bolholtsskógi 24.júní n.k kl. 18, ratleikur og grillaðar pylsur.
Allir velkomnir.






























Comments