Líf í lundi 22. júní 2019
Líf í lundi er útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins, sem skógaraðilar á Íslandi standa sameiginlega að og verður hann haldinn í annað sinn í ár. Markmið hans er að fá almenning til að heimsækja skóga landsins og stunda hreyfingu, njóta samveru og upplifa skóga og náttúru landsins. Boðið verður upp á fjölmarga viðburði í skógum landsins um land allt á laugardeginum 22. júní. Að deginum standa Skógræktarfélag Íslands og aðildarfélög þess, Skógræktin og Landssamtök sk

